Djöfull er stelpan að gera góða hluti!

c_documents_and_settings_notandi_my_documents_my_pictures_skak_islenskir_skakmenn_tr_asdis 

Fyrst sigraði hún Ísland svo Svíþjóð er núna aðal gellan í Playboy setrinu og nú er hún búin að sigra Búlgaríu á núll einni!

Svo er fólk að tala um að Björk sé góð landkynning... tisss húmbúkk!

Sá þetta á visir.is

Heyrðu þetta er alveg magnað, ég er ekki einu sinni kominn til Búlgaríu en orðin stórstjarna þar!" segir fyrirsætan Ásdís Rán á blogginu sínu. Búlgörsk slúðurblöð eru nú uppfull af fregnum af Ásdísi og fótboltakappanum Garðari Gunnlaugssyni eiginmanni hennar, sem flytjast á næstunni búferlum til landsins.

Eins og fram hefur komið hefur Garðar skrifað undir samning um að spila með CSKA Sofiu í Búlgaríu. Hann fór á dögunum til Búlgaríu og vakti að sögn mikla athygli fjölmiðla. Ásdís segir að í kjölfarið hafi blaðamenn farið að grafast fyrir um fjölskylduhagi hans og þá fundið auglýsingu hennar eftir au-pair stúlku.

„Svo vissum við ekki meir en að eitt fréttablaðið birtir heilsíðu með fjölskyldu myndunum af prófílnum ásamt upplýsingum af vefsíðunni og gera einhverja stórfrétt úr því! Þessar fjölskyldu myndir sem birtust þar hafa vakið áhuga allra blaðana og þeir ákveðið að leita af mínu nafni á netinu og dottið svona svakalega í lukkupottinn!," segir Ásdís í færslunni. Þetta var fyrir nokkrum dögum síðan, og hefur Ásdís verið fyrirferðarmikil í þarlendum fjölmiðlum síðan, og meðal annars veitt tvö viðtöl.

Í fyrradag hélt Garðar blaðamannafund, og voru blaðamenn þar meira en lítið forvitnir um spúsu hans, hvort hún væri komin til landsins, hafi sést á flugvellinum og annað í þeim dúr. „Ég er semsagt orðin uppáhalds fótbolta frú Búlgaríu að mati fjölmiðla og þeir bíða eftir mér á flugvellinum!," skrifar Ásdís.

Henni líst þau greinilega illa á að mæta blaðamannahernum nýkomin úr flugi með börnin. „Ég sá þetta alveg fyrir mér - búin að ferðast með víkingasveitina (börnin) yfir til Búlgaríu (ÞAÐ ER EKKI EINNI MANNESKJU BJÓÐANDI) og vanalega þegar ég kem úr flugi með þau þá er ég hálfskríðandi, með reitt hárið, yfirleitt búið að hella yfir mig alla og makeuppið ónýtt! Þannig að það verður skemmtileg sjón sem bíður þeirra þar. Spurning hvort ég gæti ekki leigt svona escort til að fylgja mér til Búlgaríu með krakkana og setið bara sjálf í buisness class," skrifar Ásdís, sem segist reikna með því að það verði aðeins meira stuð í Búlgaríu en í sveitinni í Svíþjóð þar sem fjölskyldan hefur dvalið undanfarið.

Hún er Yndisleg hún Ásdís okkar!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Best í Búlgaríu

Ómar Ingi, 1.9.2008 kl. 13:08

2 identicon

Ég var nú barnastjarna í Angóla en ekki er ég að fækka fötum og tala um sjálfan mig í tíma og ótíma!

...désú (IP-tala skráð) 1.9.2008 kl. 21:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband