Færsluflokkur: Spil og leikir

Það er það klárt Litla hafmeyjan verður á Rás 2 í sumar!

Nú getur þjóðin rifjað upp gamalt bros því hin stórkostlegi útvarpsþáttur Litla Hafmeyjan verður flaggskip Rásar 2 í sumar... of mikið?

Þátturinn verður eins og í fyrra á föstudagskvöldum frá 19:30 til 22:00 í umsjá Dodda frá Reykjavík og Andra F. frá Köben nema að Búi Bendtsen skokkar í skarðið í júní þar sem Andri skellir sér á kvikmyndaskólabekk í Tékklandi.

Þátturinn verður væntanlega með svipuðu formati og í fyrra nema jafnvel betri... ef það er mögulega hægt... of mikið?

Fyrsti þáttur verður mánudaginn 1. júní (frábær dagur) sem er annar í hvítasunnu og er spurning um að vera pólitískur í upphafi og rífa kjaft! Guðlaugur Þór mun væntanlega verða fyrsti gestur og djöfull verður hann grillaður!!!

Hann líka kannski svarar þeirri spurningu: Eru allir stjórnmálamenn leiðinlegir? Dagur B gerði sitt besta til að svara þeirri spurningu játandi.

Litla Hafmeyjan góður félagi þeirra sem ætla að heimsækja landið okkar í sumar, fátt betra en að hanga í bústaðnum með öl og hlusta á Meyju sín...


1. Maían komin á netið

Úrslitaleikurinn í hljómsveitabattlinu, Pétur Jóhann, Helgi Sellout, Ölver afi Andra, top 10 listinn fyrir bestu statusana á Feisbögginu, Leikjahorn Soffíu sætu.....

Ekki alslæmur þó ég segi sjálfur frá..

Hlustið og þið munuð heyra:http://dagskra.ruv.is/ras2/4465524/2009/05/01/

 

pic


80´s nörda quizið frá því í gær (fyrir atvinnumenn)

Það er kannski hálf erfitt að nota þetta format fyrir svona quiz en gerum það samt.

Þið sjáið alla hljóð bútana í spilaranum hér til hliðar og númerin tengjast náttúrlega númerum spurninganna.

Mæli með að menn svari ekki á kommenta hólfi heldur sendi mér meil doddilitli@gmail.com og ég sendi ykkur svörin um hæl.

Kristinn Pálsson og Bertel vinur hans unnu keppnina með 72 stig, ég efa að nokkur toppi það.

Jói Dm og Dj Johnny skoruðu 71, næsta lið var með fimmtíu og eitthvað....

 

 

ps. Ég skrifaði spurningarnar bara fyrir mig og má væntanlega finna fullt af hressandi villum og  ef það fer í taugarnar á þér þá bara fekk off.

Vegna fjölda áskoranna, hér er 80´s nörda quizið frá Dillon í gær... nú hefur engin afsökun á að taka ekki þátt!

        80´s Pop Quiz Dillon 30. april

  1. Hvað hét fyrsta plata Eurythmics? - 2 stig
  2. Hvaða Breska hljómsveit stóð á bakvið endurkomu Tinu Turner með laginu Let´s Stay Together sem var fyrsti singullinn af metsöluplötunni Privat Dancer –2 - stig
  3. Hverjir flytja þetta lag- 2-stig
  4. Frá  hvaða löndum koma þessar hljómsveitir?  1 stig fyrir hvert rétt land.
  5. Hver spilar á bassa í þessum lögum?– 2 stig
  6. Hver stofnaði plötuútgáfuna Zang Tumb Tuum 1983 og hvaða hljómsveit var stærsta nafn útgáfunnar? 2 stig
  7. Hver rappar? Þá meina ég rapparann sjálfan ekki hljómsveitina sem hann tilheyrði. 1 stig fyrir hvert rétt svar.
  8. Við hvað starfaði Ali Score söngvari A Flock Of Seagulls áður en hann fór í poppið og á hvaða hljóðfæri lék bróðir hans í hljómsveitinni? - 2 stig
  9. Hvaða Einsmellungar (one hit wonder)heyrast í þessari syrpu? 1 stig fyrir hvert rétt svar
  10. Hvaða duet skipuðu Paul Humphreys og Andy McCluskey. - 2 stig
  11. Hvaða production team átti flestu smellina á níunda áratugnum í Bretlandi? 2 stig
  12. Úr hvaða hljómsveit urðu Fun Boy Three til? 2 stig
  13. Hvaða skammlífu hljómsveit stofnaði Vince Clarke eftir að Yazoo gaf upp öndina? 2 stig
  14.  Úr hvaða lagi er þessi texti?  
When they kick at your front door, how are you gonna come
With your hands on your head or on the trigger of your gun
When the law break in, how are you gonna go
Shot down on the pavement or waiting on death row
 
 2 stig
 
15.  Úr hvaða lagi er þessi texti?  
I get up in the evening
And I ain't got nothing to say
I come home in the morning
I go to bed feeling the same way
I ain't nothing but tired
Man I´m just tired and bored with myself
Hey there baby I could use just a little help
 
2 stig
 
16.  Flestallir kannast við Malcom Mclaren og hverslags vinnu hann bak við tjöldin fyrir Sex Pistols, Adam Ant og fleiri en hvað hét fyrsta solo plata hans sem innihélt meðal annars Buffalo Gals?  2 stig
17.  Fyrir hvað stendur UB40?2 stig
18.  Úr hvaða 80´s lögum/sömplum eru þessi lög byggð? Ég vil fá flytjendur laganna!
 1 stig fyrir hverja hljómsveit
19.  Með hvaða tónlistarmanni stóð þessi í heitu ástarsambandi í 5 ár, sá er þekktastur í dag fyrir að vera giftur einni af stærri stjörnum heims–2 stig
20.  Hver er Íslenska þýðingin á Thomson Twins? –2 stig
21.  Úr hvaða lagi er þetta texta brot: Ég las það í leiktu þér strákur tímaritinu að einhvertíma tökumst við á loft. Vil nafn á lagi og flytjanda –2 stig
22.  Á hvaða safnplötu heyrðist fyrsta Toddmobile lagið, lagið var Sameiginlegt. -2 stig
23.  Hvaða hljómsveitir koma frá Sheffield? 1 stig fyrir hverja sveit
24.  Hvaða hljómsveit töldu meðlimir Duran Duran vera sína einu keppinauta, haft eftir Símoni? - 2 stig
25.  Í hvaða litum heyrum við? 1 stig fyrir hvert rétt svar
26.  Hvaða söngvari er með Ex-dasy tattooerað  á handlegginn á sér, sem átti að víst að vera ecstasy en hann vissi ekki hvernig það var skrifað. Það má geta þess að umræddur söngvari hóf ferilinn á níunda áratugnum en náði almennum vinsældum eftir 1990 plús að maðruinn hefur verið mun frægari fyrir annað en söng síðastu 15 ár. –2 stig
27.  Frá hvaða bæjarfélagi koma þessar sveitir? 1 stig fyrir hvert rétt svar
28.  Á hvaða plötu Van Healen leysti söngvarinn knái Sammy Hagare af rokk goðið David lee roth? – 2 stig
29.     Næst spila ég brot af lögum hljómsveita sem áttu góða tíð einhvertíma á níunda áratugnum, 
þessi lög voru tekin upp áður en sveitirnar höfðu fundið stílinn sem þær voru hvað þekktastar á þessum áratug sem við höfum verið að skoða í kvöld og ég spyr hvaða hljómsveitir eru þetta?– 2 stig fyrir hvert rétt svar
30.  Hraðritunarþrautin 21 lag á rúmri mínútu, það skal nefna eins marga flytjendur og mögulegt er.–. 1 stig fyrir hvert rétt svar
 
 
 

80´s nördar!

80´s pop quizið verður á morgun, skora á alla að mæta!

Þetta hefst um 21.01 verðlaun glæsileg Segir mér Franz vert á Dillon).

Margir hafa spurt mig: hvað mega margir vera í hverju liði og svarið er einfalt, þetta er nörda keppni og þá spila menn solo... ss. einn í liði.

Koma svo nerdz´og líka þeir sem vilja ekki viðurkenna það, Dillon sportbar, Trönuhraun 10 Hafnarfirði.


Spariþáttur Íslensku þjóðarinnar, Litla Hafmeyjan og 80´s nördaquiz framundan.

80s 

það verður fjör í næstu viku, 30. Apríl verð ég með 80´s nörda popquiz á Dillon Hafnarfirði og skora ég á alla sem telja sig hafa vit á 80´s tónlist að mæta, þar má nefna nokkra blog félaga: Daða, Omma, James Blond og emmcee.

Ég tek það sem vaginuveiru ef þið mætið ekki!

Föstudagskvöldið 1. Maí snýr síðan Litla Hafmeyjan aftur á Rás 2 kl 19:30.

Andri sendir út eins og venjulega frá Köben og ég í Efstaleitinu.... ef tæknimenn Ríkisins ná að tengja þetta saman (hefur ekki verið þeirra sterka svið hingað til)

Margt verður brallað þara á meðal verður hljómsveita battlinu lokað, sigurvegararnir frá því í fyrra Dr. Spock og Ligths on the highway etja kappi og kemur í ljós hver er Íslandsmeistari í hljómsveita battli.

Reglur eru: 3 lög á band, hvert lag 1 min og spila böndin sín lög til skiptis þannig að það verður 6 mínútna brjálæði... Það sem böndin þurfa að spila í þetta skiptið er: 1  lag frá sjálfum sér, eitt frá andstæðingnum og eitt verkalýðs lag (1.Maí).

Good times..

Mermaid_from_hell


þetta finnst mér fyndið show!

Nokkur brot úr Nevermind the buzzcocks


Einkennileg þunglyndiskeppni Rásar 2

Ég hef alltaf gaman af sönglaga keppnum þó svo að lögin sæeu oft alls ekkert skemmtileg, einhver fettis hjá mér ....

Ég meira að segja var að pæla í að taka þátt í þessari bjartsýniskeppni Rásarinnar en brann inni eins og svo oft.

Ég ég skellti mér á síðuna sem heldur utan um þessi lög og ætlaði heldur betur að hressa mig við og fá jákvæða strauma frá Íslenskum tónlistarmönnum berja jákvæðni í Íslenskt brjóst mitt...... did not happen.

Mig langaði bara að fara að gráta þegar ég hlustaði á þetta, allt einhverjir angurværir söngvar (nema Langi Seli og dr. Gunni) og heildar myndin bara mjög mæðuleg, ég gaf mér ekki tíma í að hlusta á textana þar sem lögin voru svo niðurdrepandi.

Ég vildi ekki fara með tárin í augunum í rúmmið.

Það var talað um að það hefðu verið send inn 100 lög og 12 bestu komast í úrslit! 10 af þeim 12 eru niðurdrepandi og ekkert rosalega "góð".....

Hvað er þá málið með þessi 88?

Ég tek líka eftir því að í öllum keppnum Rásarinnar þá eru alltaf einhver sveitalög sem eru í úrslitum, kannski er bara þess háttar musik send inn en af hverju heyrir maður aldrei hressandi disko? (rámar að vísu að það hafi verið eitthvað rapp grín um jólin, er ekki viss)

Fyrir þá sem vilja hlusta á snilldina:http://www.ruv.is/heim/vefir/ras2/poppland/songlagakeppni/


Þar sem svörin eru flest öll komin þá kem ég með öll svörin.

Ég held að ég eigi efni í eina til svo kannski að maður hendi inn loka sarpinum um helgina.

Emmcee og Benni eru ansi vel að sér í þessu, Vissi ekki að Benni væri svona vel að sér í sömplunum.

Það er erfiðast að finna hversu erfitt þetta má vera......

Glöggir lesendur sjá að orginal lagið er skrifað fyrir ofan sarpþjófana

 Barry White - It's Ecstasy When You Lay Down Next To Me

 

Lalo Schifrin - Jim On The Move

Jimmy Bo Horne - Let Me Be Your Lover

 

 Googie Rene - Smokey Joe's La La

 Marlena Shaw - Woman Of The Ghetto

 Billy Cobham - Stratus

Lyn Collins - Think (About It)

Lulu - Love Love's To Love

Hall & Oates - I Can't Go For That

 Lalo Schifrin - Danube Incident

Það vantar nafn á 2 myndbönd Tube og eru það 2. Wiseguys Oh la la og bróðir þeirra 8.  Fatboy slim og Santa cruz


Sarp getraun númer 2, hanskarnir af!

Komin tími á að reyna aftur við hljóðsarps getraun mína.

Í gær rúllaði plötusnúður/íþróttafréttamaðurinn/auglýsingaguruinn Benni þessu upp á nó tæm svo ég er búinn að þyngja draslið.

Nú fá menn engin nöfn á frumsarpið og geta því ekki flett því upp á internetinu (ekki að ég sé að væna Benna um það).

Einnig er óhætt að segja að bútarnir séu eilítið erfiðari og kannski er þekktasti hluti sarpsins ekki notaður frá a-ö.

Bútana er að finna í spilaranum hér til hliðar ef það vafðist eitthvað fyrir mönnum.

Sömu reglur og í gær: hver fékk lánaðan hljóðbútinn og hvað hét lagið sem búturinn var notaður i.

Vissulega er þetta blogg format ekki það besta fyrir svona getraunir en ansk. alltaf gaman að brjóta heila.

Svörin koma í fyrsta lagi á morgun en ef þið eruð með þetta þá er allt í góðu að henda því inn..... kannski seinni partinn Undecided


Getraun daxxins

Getur þú lesandi góður sagt mér hver samplaði úr lögunum í spilaranum og hvað heita þau lög sem notuðu samplið.

Svarið kemur á næstunni...

Koma svo taka þátt hafa gaman.

Benni kláraði þetta á no time... eða nánast.

Næst verður þetta erfitt!

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband