Færsluflokkur: Tónlist

Beastie boys eru mættir í spilarann og núna er þetta brand new!

Um að gera að hlusta, það er ekki á hverjum degi sem þeir fá gestarappara... Nas blaðrar með þeim.


Fyndið stuff!

Í spilaranum hjá mér eru 2 brot úr Litlu Hafmeyjunni síðan á föstudaginn.

Annað inniheldur 2 gleðilög um Icesave sem Viking Giant Show og Hljómsveitin Reykjavík sömdu og notuðu í Hljómsveitabattlnu.

Hitt brotið er eindæma fyndið þar sem Freyr Eyjólfsson fer á kostum í sem Hallbjörn Hjartason, Jakob F. Magnússon og Björn Jörundur, vel þess virði að hlusta.

Góða skemmtun


Nýtt í spilaranum....

Nýja Artic Monkeys og nýja Beastie Boys (að vísu rmx, fann ekki orginal) og 2 lög sem ég hef ekki heyrt í hátt í 30 ár og voru í uppáhaldi, China Crisis og Linx.

R.I.P. á MJ-inn..... skárra en þessi viðbjóður SC í gær


Litla Hafmeyjan spariþáttur Íslensku þjóðarinnar föstudagskvöldið 26. jún á Rás 2

mynd 

Það verða cannónur sem mæta í hljóðver 1 á Rás 2 á föstudagskvöldið.

Hljómsveitabattlið heldur áfram og það engir aukvisar í þetta skiptið!

Unglingahljómsveitin Stuðmenn etja kappi við við sveit sem haldið hefur sig undir grænni torfu síðustu ár, Sóldögg.

Reglurnar í þetta skiptið eru

1 lag frá sjálfum sér

1 lag frá andstæðingi

og 1 lag þarf að vera rapplag og skoraði ég á Frímanninn til þess að rappa fyrir hönd Stuðdrengja, Beggi sér um rappið Daggar megin.

Gesturinn að þessu sinni er stórlax og hefur sopið fullt af ausum, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, sendiherra bara til að nefna eitthvað.

Áfram skorum við á þjóðina um að sýna hvað í henni býr og opinbera hæfileika sína í beinni útsendingu og jafnvel fá fyrir það verðlaun.

Reynt verður að ná sambandi við Andra Frey sem staddur er í Tékklandi, Check!

Síðast en ekki síst mun Elvis Aron Prezz taka lagið og keyra allt í rugl í lok þáttar.

Það væri rosaleg heimska að leggja(st) ekki við hlustir klukkan 19:30 á Rás 2 á föstudaginn.


Litla Hafmeyjan á fös 19. júl kl. 19:30 á Rás 2

Litla hafmeyjan, spariþáttur Íslensku þjóðarinnar á föstudagskvöldið
Hljómsveitin Morðingjarnir keppa við strákabandið Diktu í hljómsveitarbattli og gestur þáttarins verður gubbandi glaður Sigurjón Kjartansson.
Hvur veit nema að Þorsteinn J og Elvis láti í sér heyra og ekki gleyma Hæfileikalandinu, þar sem þú getur slegið í gegn í beinni útsendingu.
Fyrir þá sem ekki vita þá er bæði hægt að heyra Meyjuna á netinu: http://dagskra.ruv.is/nanar/8294/
Svo var hún að detta í podcastið í dag, engin ástæða til að láta sér leiðast! http://ruv.is/podcast/

Litla hafmeyjan á föstudaginn

 272432420x0

Búi Bendts hoppar í skarð Andra þar sem hann þarf að skreppa til Tékklands.

Land og Synir etja kappi við Jan Mayen í hljómsveitabattlinu, reglurnar í þetta sinn eru: eitt eigið lag, eitt lag frá andstæðingi og eitt lag sem flestir hlustendur kannast við nema það lag þarf að setja í Þrjú á palli útsetningu, spennandi.

Egill Einarsson, Störe, kjeppinn, Gillznigger,Kjötmaðurinn eða hvað hann heitir þessa dagana verður gestur þáttarins og spilar hann fyrir okkur föstudagsfílings lagið og sakbitnu sæluna hans.

Ekki má gleyma nýjasta æðinu í Íslensku útvarpi: Ísland hefur talent eða Hæfileikalandið!

Þar gefst hlustendum tækifæri á að láta öll ljós sín skína í beinni útsendingu fyrir framan alþjóð.

Spariþáttur Íslensku þjóðarinnar á föstudaxxkvöldum frá 19:30-22:00

 

 

 

 

 

 

 


Kominn tími til!

Akkúrat það sem vantaði í tónlistar flóruna, það er búið að setja Bítlana í allar útgáfur og örugglega kammer líka. En er hægt að fá nóg af Obladí oblada?
mbl.is Bítlalögin í léttri kammer-sveiflu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litla Meyjan komin á beinu brautina...

Þá er Litla Hafmeyjan komin á sinn tíma, föstudagar 19:30 til 22:00.

Fyrstu hljómsveitaböttlin fóru fram síðast föstudagskvöld: Mammút vs. Á Móti Sól og Brain Police vs. Cliff Clavin.

Reglurnar þetta skiptið voru að böndin áttu að tala eigið lag, lag frá andstæðingi og nýtt frumsamið sumarlag og er óhætt að segja að allir hafi deliverað ofar væntingum.

Mammút mættu söngkonulaus en náðu samt að sigra Á.M.S. 5-4 (hlustendur völdu þann sem þeim þótti betri). Það var virkilega gaman að heyra samrunan eftir keppnina þar sem Magni söng með Mammút, Rauðalæk.

Seinni leikurinn var hressandi sömuleiðis en þar vann Cliff Clavin 5-1 stórsigur á Brain Police sem áttu samt besta sumarlagið.

Svo það er ungliða hreyfingin sem heldur áfram í 8 liða úrslitin og vonandi flagga mammútliðar söngkonu í það skiptið.

Einnig heyrðum við í Plútó sem átti að fara í tísku og hegðun en talaði aðallega um KB sem stjórnar einhverjum tískuþætti á Skjá einum.

Síðast en ekki síst var farið í Hæfileikalandið þar sem hlustendur fá tækifæri á að slá í gegn í beinni útsendingu.

Sigurvegari kvöldsins var Stefnir sem söng She´s gone með miklum glæsibrag.

Hlakka til að sjá hvað þjóðin ætlar að bjóða upp á í næstu viku.

 


Litla Hafmeyjan á föstudaxxkvöldið

Ótrúlegt vesen en það hafðist.
  Litla Hafmeyjan á föstudaginn: Hljómsveitabattlið fer af stað, 2 leikir Mammút vs. Á móti sól og Brain Police vs. Cliff Clavin (Skímó skitu á sig) Hæfileikalandið, hæfileikakeppni fyrir hlustendur sem hringja inn og hæfileika fyrir þjóðina. Alheims stílistinn Plútó segir hvernig skal klæða sig og haga sér í sumar... djöfulli solid þáttur... giddyöpp!

 

Þakka Bjarna Clavin fyrir að redda seinna battlinu... Brain vorum búnir að æfa Skímó dem hvað ég vildi heyra það!


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband