7.7.2010 | 19:26
Hvað eru 2 mörk og einn úrslitaleikur milli vina?
Fáránlegt að vera hæla þessum dómara! Heilt yfir var hann kannski fínn en hann sleppir áberandi broti og gulu spjaldi á Van Bömmer og sekúndu seinna er boltinn í markinu! Svo gæti Van Piersí ekki verið í meira fyrir sjónarhorni markvarðar í marka 2 kol rangstæður! Svo að Van Bömmer fái að klára þennan leik án þess að fá 4-5 gul spjöld er náttúrulega bara rugl! En flott innkast sem hann dæmdi samt.....
Úsbekinn Irmatov hefur heillað marga á HM | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ómar Ingi, 7.7.2010 kl. 19:54
Já, hann er með innköstin á hreinu. Ég er sammála rangstöðunni á Fannpersí, hann var kolrangstæður og truflaði markmanninn... Ótrúlegt að hlusta á hlutdræga annars ágæta þuli sýna þetta aftur og aftur og sjá ekki rangstöðuna. Minnti helst á nýju fötin keisarans.
Ólafur Gíslason, 8.7.2010 kl. 00:42
Hrói frá Persíu er fáránlega ofmetinn leikmaður, hef aldrei skilið hve hátt hann virðist almennt skrifaður. Enda fellur hann í skuggann af sér betri leikmönnum í hollenska liðinu á HM.
Jón Agnar Ólason, 8.7.2010 kl. 18:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.