19.3.2008 | 13:04
Nú er hver að verða síðastur!
Ég er virkilega hrifin af því að fá alvöru klúbb í borgina, væri samt til í að hafa Gaukinn áfram.
Það er okkur að kenna að Gaukurinn sé að hverfa, við vorum ekkert að mæta.
Ég missti af gleðinni í kringum Tunglið í gamla daga (bjó á vestfjörðum) og nú er ég full gamall til að farað klúbba mig í hel, en ég mun kíkja á þetta og væntanlega nikka kolli til að vera cool á barmi dansgólfsins.
Gangi þér vel með tetta Kiddi minn, í guðana bænum ekki kalla þetta klúbb og spila síða Solon viðbjóð í stað klúbba tónlistar.
Ég er alltaf klár í að taka í the one´n´twos ef þig vantar fallegan DJ.
En nú er málið að kveðja Gaukinn með stæl, mæli sérstaklega með Deep Jimmy n Zepp Creams (flottasta læf band Íslands!)
Athugasemdir
Verður ekki gúrúinn tekinn aftur út úr skáppnum þar sem við erum kominn með klúbb "in da hás"
Ólafur Tryggvason, 19.3.2008 kl. 13:27
Hann kom nú fram í hinsta sinn á þessum stað, það yrði nú slakur dauðdagi ef hann færi svo á sama svið nokkrum vikum seinna.
Látum að hvíla aðeins lengur.... hann er þreyttur
Þórður Helgi Þórðarson, 19.3.2008 kl. 18:03
Það væri töff að fá Þórhall "bróður minn" miðil til að særa fram Gúrúinn og láta hann framliðinn taka nokkra slagara... ekki satt?
Markús frá Djúpalæk, 20.3.2008 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.