Ég hef skapað skrímsli

Gemsinn hringdi hjá mér í vinnunni í dag, ég sá að það var collect svo væntanlega var það 15 ára dóttir mín.

Ég svaraði og þar var hún... pabbi pabbi nenniru að hringja í þetta númer!!! plííííís ó mæ god ó mæ god.

Ég þarf að segja þér geðveikt!

Allt í góðu ég hringi í þetta númer og þar er hún móð og másandi pabbi!!!  Veistu ??? dísess!

ÉG KEM Í SÉÐ OG HEYRT !!!! Ó MÆ GOD ... GOSSH!

Þá er forsetinn á Sauðarkróki og hún með athyglissýki föður síns og hendir sér á allt sem gæti komið henni í sjónvarpið, laumar kossi á Óla og hvað haldiði, Séð og Heyrt á staðnum og draumar hennar rætast! gellan á leið í besta blað í heimi ó mæ god  ó mæ god.. dísess.

Svo kom erfið spurning! (þar sem ég hef nokkru sinnum komið fram í þessu stórkostlega blaði þá mátti ég búast við þessari spurningu)

Pabbi ! ertu ekki stoltur af mér???

Auðvitað segi ég já en að þetta sé hennar stærsti sigur í lífinu.... held ekki.

Nú skal ég ekki koma fram aftur í þessu blaði!

Ég á eina 2. ára og ég vil að hennar takmark sé eitthvað annað en að komast á síður þessa blaðs!

ferming 202


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Snillld ;)

Lára (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 19:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband