Tæknimmeyjan með betra móti í gær

NvOlafur1128x128

Það gékk mikið á hjá Hafmeyjunni í síðasta þætti, eftir 10 ár bak við tækniborð leit Doddi út eins og nýliði í tæknimálum.

Allt fór úrskeiðis: síminn, tölvan og svo misstum við samband við Andra um miðbik þáttar og þurftum að tala við hann í síma það sem eftir var ... en það magnaða var, þátturinn var frábær!

Eva Maria sagði okkur frá 30 afmælishátíð samtakanna 78 í Hafnarhúsinu..... loxins þegar það heyrðist í henni.

Pétur Jóhann Sigfússon kom síðan í heimsókn og lét, heldur betur, gammin geisa!

Hann sagði okkur að hann hefði fundið ástina og væri að gera upp tjaldvagn og .... og .... restin var eiginlega í ruglinu, jú hann "skúbbaði" hlutum úr Dagvaktinni.

Sakbitin sæla Péturs er: Sexy Back - Justin Timb. en að vísu misskildi hann sæluna aðeins því hann skammaðist sín ekkert fyrir lagið.

Lagið sem kom honum í fíling á föstudagskvöldi var: Come To Me - DMX Krew.

Að endingu var farið í Party einvígi: Keppt í party tónlist og hlustendur hringdu inn eftir einvígið og gáfu stig, þeim sem hristi betur upp í mannskap.

Það eru 3 lotur í einvíginu: Gamallt, Sakbitin sæla og nýtt eða nýlegt, eitthvað sem fólk þekkir ekki.

Svona fór einvígið fram:

Old school lotan.

Doddi- Viva Las Vegas - Elvis

Andri - I´m your Pusher man - Curtis mayfield

Önnur lota, Sakbitin sæla (guilty Plesure)

Andri- Adamski ft. Seal - Killer

Doddi - Blaze - Heya

Þriðja lota, nýtt eða nýlegt, eitthvað sem fáir hafa heyrt

Doddi - Mars - Fake Blood

Andri - That Girl Suicide - Brian Jonestown Massacre

Keppnin var æsispennandi og endaði með sigri Dodda 5-4.

Það er lítið vitað hvernig þátturinn verður næsta föstudag, Andri verður staddur á Hróaskeldu hátíðinni svo annað hvort verður hann í aðsetra Óla Palla með einhverja ótrúlega fræga kalla í spjalli eða að hann verði bara á vappi í drullunni með símann og ræðir málin.

Vonum það besta, þangað til næst....

Mæli með því að fólk smelli hér fyrir neðan, sér til hlustunar þá sérstaklega eftir fyrsta hálgtímann þar sem ég var vel í ruglinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Mars - Fake Blood  fyndið þetta er uppáhaldslagið mitt í dag , ég spilaði þetta lag í vinnunni um daginn og fólk hringdi á geðdeild landspítlans og spurði hvort ég væri þetta gæti talið eðlilegt svarið var stutt og hnitmiðað NEI

Geðveikt lag.

Ómar Ingi, 28.6.2008 kl. 14:40

2 Smámynd: Þórður Helgi Þórðarson

Gjörsamlega klikkað lag!!!!  fær gamlann mann til að til að langa á dansleik.

Það þarf mikið til þess!

Þórður Helgi Þórðarson, 28.6.2008 kl. 14:51

3 identicon

Mikið þykir heldri manni nú vænt um að þessum Sel þarna sé ekki eignað lagið Killer...

...désú (IP-tala skráð) 28.6.2008 kl. 18:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband