3.10.2008 | 13:35
Þetta er skemmtilegt, föstudagsfjör með snert af nostalgíu
Tónlist | Breytt s.d. kl. 13:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.10.2008 | 10:56
Frábært
Sól skín í heiði, Geiri félagi minn er að fara reddessu í dag og helgin framundan!
Það er allt á uppleið hér.
Svo er Litla Hafmeyjan frá 19:30 til 22:00 í kvöld, lífið getur ekki verið betra.
Ég ætla að splæsa í rauðvínsbelju eftir vinnu og hana nú!
Hér eftir verður síðustjóri jákvæður(hann þekkir orðið illa svo þetta gæti verið erfitt á fyrstu dögum.. hvað var það .. jú jákvæðninar)
![]() |
Búist við tíðindum í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.10.2008 | 11:23
Kominn tími til!!!
![]() |
Vandi út af harpixbanni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.9.2008 | 21:19
Hval og sjávar þema á föstudagskvöldið, Lífsbjörg í norðurhöfum í LItlu Hafmeyjunni
Á föstudagskvöldið fær Hafmeyjan merkilegan gest í heimsókn!
Gesturinn heitir Magnús Guðmundsson og er hvað frægastur fyrir að gera heilmildarmyndina "Lífsbjörg í norðurhöfum", sem fjallaði um falsanir og svik Grænfriðunga og annara náttúrusamtaka.
Óhætt er að segja að heimurinn hafi staðið á öndini um sinn eftir myndin var frumsýnd því engin hafði áður þorað að skoða vinnubrögð þessara samtaka.
Lögbönn, morðhótanir, lífverðir eru bara hluti af því sem verður rætt í Litlu Hafmeyjunni á föstudagskvöldið.
Hvað gerðist eftir að myndin var sýnd í ríkissjónvarpinu 14. mars 1989?
Sagan verður sögð á föstudagskvöldið!
Litla Hafmeyjan öll föstudagskvöld frá 19:30 til 22:00 á Rás 2
http://www.ruv.is/litlahafmeyjan/
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.9.2008 | 15:01
Nokkur ný spilararann
Mæli með að fólk skoði nýja Radiohead mixið og Amadou og Miriam, blinda parið frá Mali, pródúserað af Damon Albarn.
Nýja Killers lagið er þarna og er álíka leiðinlegt og það sem þeir hafa gert upp á síðkastið.
Plúsinn í pylsunni er hin frábæra Sonus Futurae og framúrstefnulagið og textinn Myndbandið!
Svo eru .arna 2 spennandi remix af Beck lögum, njótið....
Tónlist | Breytt s.d. kl. 15:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
29.9.2008 | 18:09
Tryggvi Guðmundsson varð Íslandsmeistari bæði á fös og lau.
Tryggvi var gestu Litlu Hafmeyjunnar á föstudaginn og sýndi á sér margar hliðar.
Sú sem kannski situr mest eftir í höfði mér er sú mjúka en Tryggvi opnaði sig með látum!
Hann hlustar á Celene Dion, ekki til að þóknast konunni! Hann vill það sjálfur!
Það þarf PUNG til að viðurkenna svoleiðis hluti.
Við óskum honum og öðrum fimleikja drengjum til hamingju með fótbolta titillinn.
Tryggvi náði sér líka í titil í Tónlistarsportmyndaúrpokanum keppni Dodda.
Sigraði hann Andra Frey í bráðabana þrátt fyrir vafasöm aukastig sem Andri fékk frá lélegum dómara keppninar.
Þú getur hlustað á þáttinn og keppnina hér
Lagalisti kvöldsins:
1. Flame Sebadoh 3:37 Sire
2. Allman Brothers Midnight_rider 2:59 Capricorn
3. Turn Me Loose Loverboy 5:35 Columbia
Lagið sem Kemur gestinum Tryggva Guðmundssyni í gang á föstudagskvöldi.
4. Alive Pearl Jam 5:40 Epic
Sakbitin sæla gestsins
5. Because You Loved Me Celene Dion 1:33 550 Music/Epic!!!!!
6. With A Girl Like You Troggs 2:05 Fontana
7. pieces- Chase And Status ft. Plan B 5:12 Ram Records
8. Teenage_kicks Undertones 2:25 Sire Rykodisc
9. Bissí Krissí Bjartmar Guðlaugsson 4:00 Live studio 12
10. Dr. Feelgood Motley Crue 4:50 Elektra
11. Busy_Bein'_Born Middle_Class_Rut 4:47 ECG Records / Iris
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
26.9.2008 | 10:03
Slutta nu!!!
Hvers eiga menn að gjalda?
Bjöggi og félagar kaupa þerna fótboltalið í góðum fíling... ne ne ... allir sem einhvertíma hafa heyrt minnst á félagið eru að heimta pening!
Mér fannst þetta bara fyndið þegar stjóri Sheff Utd var með þessar yfirlýsingar eftir að Sheff féll.
Ne ne nú er bara búið að samþiggja kröfuna ... eins fáránleg og hún er, hvað með hin liðin sem féllu? hvað með Liverpool og Mascerano? og svo sleppur víst gaurinn sem fékk þessa menn til West Ham!
Ég ætla að bjalla á hann Bjögga snöggvast og fá nokkrar millur, ég horfi þarna á einhvern leik þetta ár og ég var ekki alveg sáttur við hvernig Teves horfi í myndavélina, beint á mig.... ég varð fyrir mikklu tilfinningarlegu tjóni!
![]() |
Tíu leikmenn vilja bætur frá West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.9.2008 | 09:01
Fjúkkit!!!!!!
Nylon ekki Hættar!!!
Við erum alls ekki hættar, langt í frá, segir Steinunn Camilla Sigurðardóttir, einn af þremur meðlimum stúlknasveitarinnar Nylon, en lítið hefur borið á sveitinni síðan útrás þeirra í Bretlandi stóð sem hæst.
Einar Bárðarson gaf frá sér tilkynningu fyrr á árinu um að hann væri hættur sem umboðsmaður sveitarinnar. Steinunn segir þau enn góða vini í dag þó svo að þau vinni ekki lengur saman.
Við erum allar að vinna í okkar málum, erum alls ekki hættar, erum bara ekki að gera neitt eins og er, útskýrir Steinunn sem vinnur í versluninni Gull og silfur á Laugaveginum. Alma Guðmundsdóttir starfar sem blaðamaður á Fréttablaðinu og Klara Ósk Elíasdóttir stundar nám við Háskóla Íslands.
Nylon er fyrsta íslenska stúlknasveitin og var hún stofnuð af Einari Bárðarsyni á sínum tíma og sló samstundis í gegn. Hápunkturinn á ferli sveitarinnar var þó ævintýrið á Englandi þar sem sveitin komst inn á hina ýmsu vinsældalista. Steinunn segir litlar breytingar verða á Nylon og tekur það skýrt fram að þær séu ekki í pásu.
Okkur langar að skoða stefnu sveitarinnar og pæla í þessu á eigin tíma. Við erum í raun að elta það sem okkur finnst flott, segir Steinunn.
Fimmtudagur 25. september 2008 kl 08:31
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fimi Fimleikadrengurinn Tryggvi Guðmundsson verður gestur Litlu Hafmeyjunnar á föstudagskvöldið.
Besti og skemmtilegasti knattspyrnumaður þjóðarinnar mun svara spurningum Meyjunar spila fyrir þjóðina tónlist þar á meðal hræðilegustu Sakbitnu sælu í tíð Litlu Hafmeyjunnar!!!
Tryggvi mun etja kappi við Andra Frey í Poppmynda getraun Dodda lítla....
Þetta er bara til að nefna eitthvað... það verður sko meira... helling sko...
Track listi 19. sept, gestur Dagur B.
Private_dancer - Tina Turner 4:01 Capitol
Ástaróður - Bjartmar og Pétur Kristjáns 2:14 Niðurhal
Kids-soulwax-remix - MGMT 5:02 Redink/Columbia
Föstudagslag gestsins Dags B. Eggerts (og þvílíkt stuð!!!!)
Þú Komst Við Hjartað í Mér - Hjaltalín 4:20 Niðurhal
Sakbitin sæla gestins
Billie Jean - Michael Jackson 4:54 Epic
Boogie Shoes - KC & The Sunshine Band 2:12 EMI
Beautiful Future. - Primal Scream 5:09 WEA Int´l
Blitzkrieg Bop - ROB ZOMBIE 2:42 DV8/Columbia
Offitusjúklingalagakeppni
Andri, California Dreamin - Mamas & the Papas 2:41 MCA
Doddi, 1,2 Selfoss - Love Guru 5:18 msk
Mama Said Knock You Out - L.L. Cool J 4:52 Def Jam
Doddi vann keppnina.....
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)