23.7.2008 | 11:57
Guðjón svarar fyrir sig!!!!
Fann þetta á visi.is áðan... He´s back and now it´s personal!!
Á síðustu árum hefur umfjöllun fjölmiðla og bloggara orðið sífellt árásargjarnari og fólk þarf orðið lítið að gera til að fá yfir sig holfskeflu á óhroða sem hefur lítið með tjáningarfrelsi að gera. Það má til sanns vegar fær með því að vísa í þá fjölmörgu dóma síðustu ára sem hafa fallið um persónuárásir og ósannandi sem hafa birst á prenti og bloggi."
Þetta segir Guðjón Bergmann í aðsendri grein í Morgunblaðinu. Tilefni skrifa Guðjóns eru óvægin viðbrögð bloggara og pistlahöfunda í fjölmiðlum við frétt sem birtist á Visi undir yfirskriftinni Guðjón eyðir óvissunni". Fréttin birtist eftir að Guðjón sendi frá sér fréttatilkynningu um að hann væri hættur við að hverfa brott af landi, eins og hann hafði fyrirhugað.
Guðjón segir að það hafi komið sér á óvart hve óvægin viðbrögð bloggara og pistlahöfunda í fjölmiðlum hafi verið. Um sína persónu hafi verið farið mjög sterkum" orðum sem segi líklega meira um höfunda þess efnis en um nokkuð annað. Á síðustu árum hafi umföllun fjölmiðla og bloggara orðið sífellt árásargjarnari og fólk þurfi orðið lítið að gera til að fá yfir sig holskeflu á óhroða sem hafi lítið með tjáningarfrelsi" að gera. Það megi til sanns vegar færa með því að vísa í þá fjölmörgu dóma síðustu ára sem hafi fallið um persónuárásir og ósannindi sem hafi birst á prenit og bloggi.
Ég trúi því ekki að maðurinn hafi lesið það sem hann sendi á sínum tíma, hann hættur við að flytja erlendis og sér sig knúinn til að senda frétta yfirlýsingu um það !!!!! COMMON GUÐJÓN!!!!
Auðvitað fá bloggarar eitthvað til að skrifa um enda eindæma fáránleg fréttatilkynning!
Heyrðu nú er komið logn og engin að tala um meistara Guðjón... þá kemur hann aftur og vælir og segir að krakkarnir séu að stríða sér!!!
Ég á ekki til orð
Erþessi Bergmaður með pung eða vaginu????
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
22.7.2008 | 18:40
NBC kúkuðu sig í drasl ´92
Að velja þennan rosalega ófyndna mann til að taka við af Carson á sínum tíma var besti brandarinn sem Leno kom nálægt.
Einu skiptin sem hægt er að brosa er þegar hann tala við mjög heimska Bandaríkjamenn (s.s. hlægja að minni máttar) og þegar stjörnurnar voru í stuði sem var sjaldan.
Letterman er miklu meiri húmoristi en þessir 2 til samans, þó mig gruni að Conan sé skömminni skárri.
Það sem Leno hefur haft fram yfir Lettarann allan þennan tíma er að vera í Los Angeles og þar er allt fólkið sem almúgurinn vill sjá, þess vegna hefur hann haft eitthvert áhorf.
Lettarinn var meira að búa til grínið sjálfur enda mun minna um stórar stjörnur í New York en í Los Angeles.
Mér hefur munurinn á þessum soldið samsvarað sér hér á Íslandi bæði hvað varðar góðan húmor og áhorf.
Jay Leno = Spaugstofan/ Simmi og Jói
Letterman = Fóstbræður/Næturvaktin
Say no more.
Drullist til að henda Letterman í Íslenskt sjónvarp!
![]() |
Jay Leno kveður í maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.7.2008 | 16:36
Sagan endalausa.....
![]() |
Manchester United ítrekar að Ronaldo sé ekki til sölu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2008 | 11:13
Jæja hvað segir hann núna
Er það dómara mafían sem stendur á bak við þennan brottrekstur?
Einn daginn er hann að fara að taka við liði í Skosku úrvalsdeildinni þann næsta er hann atvinnulaus.
Ég mæli með því að Helgi Arnars fái hann sem aðstoðar þjálfara til Njarðvíkur og hendi þessum strákum í klakabað og sparki aðeins í rassinn á þeim.
Guðjón, sértu velkomin í Græna Lundinn!!!!
Djöfull verður deildin miklu leiðinlegri núna þegar við fáum ekki kommentin hans eftir leiki.
![]() |
Guðjón hættur með ÍA |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.7.2008 | 13:36
Geir Ólafs, Bjartmar og Powerballöður
Það var að venju góður fílingur í Hafmeyjunni á föstudaginn.
Þemað var Power ballöður: Skidrow, Steelheart, Guns n Roses, Scorpions, Nazareth og fleiri góðir sáu að mestu leiti um tónlistina, þið getið skoðað lagalistan hér til vinstri.
Við heyrðum í Bjartmari Guðlaugssyni sem ætlar að halda risa tónleika í Hallormsstaðarskógi 20. júlí ásamt Rúnna Júll, Kidda flugu og frábæru bandi.
Geir Ólafsson var aðalgestur kvöldsins, viðurkenndi hann ást sína á Michael Jackson og Sakbitna sælan hans var I Will Survive - Gloria Gaynor.
Hann talaði um væntanlega plötu sína sem verður öll sungin á Íslensku og kemur út í haust.
Spurningunni um hvort Nancy Sinatra komi fram á útgáfutónleikunum var svarað en lítið að marka svarið held ég.
Hann vildi ekki tjá sig um hvort Geir H. Harde komi nálægt þeim gjörningi.
Að sjálfsögðu endaði Geir á því að taka lagið í beinni útsendingu.
Farið í party einvígi sem þið getið skoðað nánar í lagalistanum hér til vinstri.
Að endingu skoraði Doddi á Andra að þeir kæmu með sitt hvort lagið í verlsunarmannahelgar þáttinn 1. ágúst en svörin voru óskýr.
Hljómsveitin Atómstöðin kemur næsta föstudagskvöld og mun taka lagið í beinni en hvað meira gerist hef engin hugmynd um.
Þjóðin mælir með því að þú smellir á hátalarann hér fyrir neðan og hlustir!
Powerballad þema
1. Wind Of Change The Scorpions
2. Sunnudagsmorgunn. Bjartmar_Guðlaugsson
3. With A Little Help From My Friends Joe Cocker
Gestur kvöldsins
4. Geir Ólafsson Gullkorn
Lagið sem kemur Geira í stuð
5.Blame It On The Boogie The Jacksons
Sakbitin sæla Geirs Ólafs
6. I Will Survive Gloria Gaynor
7. Geir Ólafsson I get a kick
8. 18 and life Skidrow
9. Wanted Dead Or Alive Bon Jovi
10. Love Hurts Nazareth
Party Einvígi freestæl
fyrsta lota
Andri: Ace of spades Motorhead
Doddi: Chicken Payback the Bees
Önnur lota
Doddi: Groove Is In The Heart Deee Lite
Andri: Kiss Prince
Þriðja lota , Power ballaða
Andri: Dont cry Guns and Roses
Doddi: She's Gone Steelheart
Hlustendur velja betra partýið/5687-123
Andri 5
Doddi..... minna
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 13:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Nýtt lag frá Oasis af væntanlegri plötu og jú það er bara prýðilegt!
Oasis - Falling Down
Það er jafnvel mun betra þeg Chem. Bros. hafa fiktað.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.7.2008 | 08:59
Rosalega er gott að geta fylgst með
Ég er samt hálf hissa að vera ekki tekinn með.
Það vantar allan kynþokka í þennan hóp.
Einhvernvegin grunar mig að við fáum fleiri fréttir af hópnum þegar þau fara inn í flugvélina
og þegar þau lenda
og þegar þau bíða eftir farangrinum sínum
og þegar Stóri G segir frábærann brandara
og þegar Gasi fær sér prótein drykk
og þegar þau fara í rútuna og þegar Party Hjans prumpar voða fyndið í rútunni
og þegar ............
![]() |
Merzedes Club heldur í útrás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.7.2008 | 14:04
Hver fær þá réttinn??
Hver fær stefgjöldin?
Get ég þá "tónlistarmaðurinn" sem ég er farið og coverað sir Cliff í drasl á næsta ári og heimtað rétt á lögunum.
Eða ef ég sampla tónlistina hans í drasl, hvaða reglur gilda þá?
Ég veit allavega að ég stal klassísku verki á plötu mína sem kom út fyrir nokkrum árum og notaði sem grunn en samdi lag og sönglínu yfir það.
Þeir hjá STEF sögðu að svo lengi sem ég misbjóði ekki klassíska verkinu þá er það í lagi.
Þannig að ég og félagi minn erum skrifaðir sem höfundar af lagi sem J.S. Bach á lang bestu línurnar i.
Magnað!
![]() |
ESB stefnir að því að framlengja höfundarrétt tónlistarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.7.2008 | 09:10
Nýtt Chem. Bros - Midnight Madness
Þrátt fyrir að hafa toppað á fyrstu plötunni fyrir hátt í 15 árum er alltaf gaman að heyra nýtt Chem. Bros lag.
Fannst það ekkert merkilegt fyrstu 3-4 hlustanir en venst ágætlega, það er ekki eins og maður sé að heyra eitthvað skárra á öldum ljósvakans þessa dagana.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.7.2008 | 14:11
Þetta er rokk og ról
Svo erum við að væla yfir aumri tveggja stafa tölu!!!!
Hættum þessu væli!
![]() |
2.200.000% verðbólga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)