16.7.2008 | 11:05
Hvaða rugl er þetta?
Mámar ekki fáser ains í glas eða?
Veisteggi hver ér?
![]() |
Ronnie Wood sóttur af syninum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2008 | 08:57
Er ég að detta í trommur og bassa á gamals aldri?
Þetta lag er að gera klikkaðan í dag!
DJ Hazard og lagið heitir Maachete - he gets the women!
Þegar ég heyrði þetta fyrst tók ég bara eftir hávaða og fyndnum línum í "textanum" örugglega tekið úr gamalli kung fu mynd.
Eftir því sem ég heyrði þetta oftar fór ég að sjá smá tónlist í þessu líka sem endaði með því að ég notaði þetta í Party einvígið í þættinum og gerði það stormandi lukku.
Ég veit ekkert um þennan DJ Hazard og mun væntanlega ekki leita eftir upplýsingum um hann þar sem ég tel það öruggt að mínir Drum og Bass dagar séu liðnir þegar ég fæ leið á þessu og Adele.
Þið sem eruð hjartveik... EKKI HLUSTA Á ÞETTA, þið sem eruð yfir þrítugt ...HLUSTIÐ MEÐ VARANN Á og þið sem eruð yfir fertugt.. SLÖKKVIÐ Á TÖLVUNNI NÚNA!!! ÞETTA ER HÆTTULEGT!!!!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.7.2008 | 08:41
LOVE GURU VARÚÐ VARÚÐ !!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Ég komst yfir eintak af nýjustu mynd Mike Mayers, Love Guru, og ætlaði heldur betur að halla mér aftur og horfa á nafna minn fara á kostum.
Jesús Kristur og allir hans lærisveinar.... þetta er svaaakalega viðbjóður!
þetta er greinilega erfitt nafn að bera, þekki af biturri reynslu.
Skemmst er frá að segja að ég gafst upp á myndinni eftir stuttan tíma því þetta var alveg eins og Austin Powers með nýja hárkollu og betri tennur, allir taktarnir, allir brandararnir búnir að koma í blóðmjólkuðum Powers.
Ég ákvað að spóla aðeins áfram þar sem ég var búinn að sjá Justin Timberlake eiga stór(lake) í trailernum fyrir myndina... og fann... og jú ... það var gaman í 30 sec. svo var það búið.
Eddie Murphy fær hræðilega dóma fyrir mynd sína Meet Dave, ég segi hittið þennan Dave mun frekar en þennan Love Guru.
Mike Mayers má fara að snúa sér að öðru....
Einkunn: -100 af 5 stjörnum mögulegum.
PS. ég að vísu gafst upp á myndinni en horfði á nokkra búta hér og þar og kannski hitti ég bara á leiðinlegu bútana.
En ég ætla ekki að taka sénsinn á að það sé einhversstaðar brandari þarna!
Love Guru... blessuð sé minning hans
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.7.2008 | 08:23
Geir Ólafs og Powerballad þema á föstudaginn... Deja-vu?

Það verður "stuð stuð stuð er ég reyni við hana á balli" aðeins að vitna í skáldið...
Powerballöðu þema í Litlu Hafmeyjunni á föstudagskvöldið: Whitesnake, White Lion, Foreigner, Scorpions, Nazaret og allar þessar hárbanda sveitir fá sinn skerf af þættinum.
Geir Ólafs verður aðal gestur og segir okkur hver sé hans Sakbitna sæla og hvaða lag komi honum í gang á föstudagskvöldi.
Að sjálfsögðu kemur hann og tekur lagið af væntanlegri plötu sinni.
Party einvígið verður með sérstöku sniði í tilefni þema kvöldsins og Stafaleikfimin verður al Íslensk í þetta sinn, hefur einhver eitthvað í Óskar Pétur sem hefur sigrað þrisvar!
Skellum okkur í spandexinn og hlýrabolinn og görgum okkur hás á föstudaginn, Litla Hafmeyjan í boða Iceland Express!
D
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er óhætt að segja að þátturinn á föstudaginn hafi verið skemmtilegasti þátturinn hingað til! Gesturinn, Þorgrímur Þráinsson var eins og við var að búast frábær!
Við fengum að heyra hvað hann hefur verið að gera upp á síðkastið, kvikmyndahandritið, bækurnar, þjálfunin og allt sem Toggi hefur verið að gera.
Kom fram í þessu spjalli að Andri og Þorgrímur ætla að vinna kvikmyndina saman og jafnvel að Hafmeyjan og Togginn ætla að hlaða í lag saman, fylgist með!
Nýtt Hafmeyjulag var frumflutt þar sem sérstakur gestur var 7berg en við einmitt ræddum við "shabba" um væntanlega plötu hans.
Eitt rosalegasta Party Einvígi sem um getur fór fram og sigraði Doddi með naumindum.
Við mælum eindregið með því að þú smellir á linkinn hér fyrir neðan, hlustir og hafir gaman af, í festival fíling!
Við viljum benda fólki á næsta þátt en þá verður kraftballöðu þema (power ballads) svo það væri tilvalið að safna í tagl og þurrka mesta rykið ag leðurbuxunum því það verður rokkað, sungið og gólað.
http://dagskra.ruv.is/streaming/ras2/?file=4410264
1. I Ran (So Far Away) Flock of Seagulls
2. Spooky Dusty_Springfield
Heitipotturinn
1. Just Getting Started Dikta
2. In the New Year The Walkmen
3. Sandpappír 7berg
3. Rock with you Michael Jackson
Hafmeyjan Syngur
4. Roget pa Ströget Litla Hafmeyjan Ft. 7berg
5. Head Over Heels Tears for Fears
Sakbitin sæla Þorgríms Þráins
6. Ástin Mín Hera
Lagið sem kemur Þorgrími í stuð á föstudegi
7. Feel Robbie Williams
8. Hey Good Lookin Hank Williams
9. Think About Lyn Collins
Party Einvígi
Fyrsta lota Old School
Doddi Land Of 1000 Dances Wilson Pickett
Andri Roadhouse blues The Doors
Önnur lota Sakbirin Sæla
Andri (Ive had) The time of my life Billy Medley - Jennifer Warnes
Doddi Alveg hamstola Sálin hans Jóns míns
Þriðja lota Nýtt eða nýlegt
Doddi Maachete DJ Hazard
Andri Blazer Lotterboys
Vegna tímaleysis voru aðeins teknir 3 hlustendur inn, Doddi sigarði 2-1
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.7.2008 | 13:19
Tár Bros og Rómantík á Föstudaginn

Það verður meistari Þorgrímur Þráinsson sem verður gestur þáttarins á föstudaginn.
Drengurinn er án efa rómantískasti maður Íslandssögunar og allt of kynþokkafullur!
Það verður gaman að sjá hvaða lag kveikir í honum á föstudagskvöldi og hver sé hans Sakbitna sæla.
Nýtt lag Litlu Hafmeyjunnar verður frumflutt, lag sem Doddi samdi og Andri þarf að gera texta og laglínu yfir (hver man ekki eftir Sultutíð).
Lagið verður flutt á tveimur stöðum, tónlistin kemur frá Íslandi en söngurinn frá Danmörku!!!!!
Endalaus radio moment í Hafmeyjunni.
Það verður Party einvígi (keppt í hver nær að skapa meira party, 3 lotur og hlustendur velja sigurvegara).
Stafaleikfimi, sögur af Hróaskeldu og hellingur af gleði, tómt rugl að missa af Meyjunni!
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2008 | 15:49
Ekki það að ég sé mikill Drumm og Bass maður
En mikið svakalega er þetta velheppnað remix!!!
Adele - Hometown Glory (High Contrast Remix)
og við reynum aftur, þetta er vel þess virði að hlusta á, sándið ekki jafn gott á þessu og síðustu tilraun.
Dægurmál | Breytt 8.7.2008 kl. 10:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.7.2008 | 12:11
GODDEMFOKKSJITT!!!
![]() |
Leiknir vann botnslaginn í Njarðvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.7.2008 | 20:08
Litla Hafmeyjan á Hróaskeldu
Hróarskelduhátíðin verður í lykilhlutverki í þættinum á föstudaginn.
Gaman verður að heyra hvort tæknin verði í okkar liði....
Andri Freyr sendir út frá hátíðinni, tónlistin verður mest öll frá hljómsveitum sem koma fram í ár og að sjálfsögðu fer Helgarplanið í að kenna fólki hvernig á að haga sér á útihátíðum.
Við hringjum í Dr. Gunna sem kemur fram á Humarhátíðinni á Höfn sama kvöld en hann er einnig þaulreyndur tónlistarhátíðarfari", þá mun hann leyfa okkur að heyra hvað hann hlustar á þegar enginn annar heyrir = Sakbitin sæla.
Við skellum okkur í dagskráliði sem við höfum gleymt síðustu vikur, t.d. Heita pottinn (ný tónlist skoðuð)lögin sem verða skoðuð: Common - Universal Mind Control, cage the elephant - aint to rest for the wicked (wicked devil remix), Beck - GammaRay, Þjóðarpúlsinn (hlustendur tjá sig), 10 á 10 (10 party lög á 10 mínútum) ofl.
Tónlistin verður þyngri en venjulega: Slayer, Judas Priest, My Bloody Valentine koma til með að heyrast enda allar þessar sveitir á Skeldunni.
VIð ætlum að spila lag af merkilegustu plötu sögunar, óútgefinni plötu Guns and Roses C.D. en stór hluti plötunnar lak á netið fyrir skemmstu og menn missáttir við afraksturinn en engin eins sáttur og Andri!
Þeir sem komast ekki á Skelduna ættu að hjúfra sig að einhverjum nákomnum og láta sér líða vel við viðtækið, föstudagskvöldið frá hálf 8 til 10.
D
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.6.2008 | 21:06
Sigur fótboltans!!!
Að huxa sér... fyrir 4 árum voru það Grikkir sem urðu Evrópumeistarar, leiðinlegra lið hefur ekki sést spila fótbolta(nema þegar Ísland er að spila).
Núna voru það Spánverjar og vissulega voru þeir besta og skemmtilegasta liðið, hef aldrei haft neinar taugar til liðsins en ég er yfir mig sáttur, var meira að segja sáttur þegar þeir slógu mína menn (Itali) úr keppni.
Nú er það bara upp með sokkana og senda Ísland í næstu úrslita keppni, það er búið að fjölga í 24 lið.
Ég er samt á því að það ætti að fjölga í 64 lið! Þá ættum við séns.
Vina Espania!
![]() |
Spánn Evrópumeistari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)