Er ég að detta í trommur og bassa á gamals aldri?

Þetta lag er að gera klikkaðan í dag!

DJ Hazard og lagið heitir Maachete - he gets the women!

Þegar ég heyrði þetta fyrst tók ég bara eftir hávaða og fyndnum línum í "textanum" örugglega tekið úr gamalli kung fu mynd.

Eftir því sem ég heyrði þetta oftar fór ég að sjá smá tónlist í þessu líka sem endaði með því að ég notaði þetta í Party einvígið í þættinum og gerði það stormandi lukku.

Ég veit ekkert um þennan DJ Hazard og mun væntanlega ekki leita eftir upplýsingum um hann þar sem ég tel það öruggt að mínir Drum og Bass dagar séu liðnir þegar ég fæ leið á þessu og Adele.

Þið sem eruð hjartveik... EKKI HLUSTA Á ÞETTA, þið sem eruð yfir þrítugt ...HLUSTIÐ MEÐ VARANN Á  og þið sem eruð yfir fertugt.. SLÖKKVIÐ Á TÖLVUNNI NÚNA!!! ÞETTA ER HÆTTULEGT!!!!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Þetta er afar hressandi

Minnir á gamla góðu daga í Londress

Ómar Ingi, 16.7.2008 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband