Færsluflokkur: Dægurmál

Litla Hafmeyjan stræks bekk á mánudaginn

hafmeyjan_augl 

Litla Hafmeyjan mætir aftur í stöðugt loft mánudaginn 1. Júní annan í hvítasunnu. Áfram verður það form á þættinum að Andri röflar frá Danmörku og Doddi frá Efstaleiti.
Í júní skreppur Andri í kvikmyndaskóla í Tékklandi og skokkar litli maðurinn í skarðið, Búi Bendtssen.
Þátturinn verður með svipuðu sniði og í fyrra nema að við teljum okkur trú um að við spilum meiri musik, efa það...
Einn gestur situr venjulega í c.a. klukkutíma og restin fer í ýmsar keppnir og vitleysu.
Hellst má geta hljómsveita battlsins sem verður massíft í sumar, skráðir keppendur eru nú þegar:jan Mayen, Ingo og Veðurguðirnir, Sóldögg, Stuðmenn, Dikta, Brain police, mammut
Á.M.S., Buff, Reykjavík, Land og Synir  Sniglabandið, Viking Giant Show, Atomstöðin, Morðingjarnir, síðasta bandið er ekki klárt.

Þó fyrsti þáttur verði á mánudegi þá verðum við á gamla föstudagstímanum 19:30 - 22:00.

Gesturinn fyrsta júní verður Guðlaugur Þór Þórðar pólitík alheims stílistinn Plútó mun segja okkur hvað sé inn og hvað ekki í sumar, sumarlaga einvígi milli Danmerkur og Íslands fer fram  og dregið í 16 liða úrslit í battlinu.

Verið með í góðu stuði á Rás 2 í sumar

crop_500x

Kyssulegur maður... mmmmm


Nú er ég hissa! Sáu þau fram á að ná ekki að fylla Höllina með einu lagi?

Tekur Svía framyfir Íslendinga

mynd
Jóhanna Guðrún mun vafalítið bræða hjörtu Svíanna líkt og Íslendinga.

Jón Hákon Halldórsson skrifar:

Jóhanna Guðrún Jónsdóttir Evróvisionstjarna er á leið til Svíþjóðar til fundarhalda og samningaviðræðna ásamt umboðskonu sinni, Maríu Björk Sverrisdóttur.

Jóhanna Guðrún mun því fresta tónleikum sem áttu að fara fram í Laugardalshöll til haustsins. Fram kemur í tilkynningu til fjölmiðla vegna málsins að í kjölfar frækinnar frammistöðu Jóhönnu Guðrúnar í Eurovision söngvakeppninni í Moskvu hafi mörg stærstu hljómplötufyrirtæki og umboðsskrifstofur heims lýst yfir áhuga á samstarfi.

Aðstandendur tónleikanna benda á að þeir sem þegar hafi keypt miða á tónleikana geti geymt þá til haustsins eða fengið endurgreidda með því að hafa samband við Midi.is. Jóhönnu Guðrúnu og aðstandendum tónleikanna þykii leitt að þurfa að fresta tónleikunum nú en vonist til að sjá sem flesta
í Laugardalshöllinni í haust.


visir.is

Ferguson: Stefnir í að Ferdinand spili á miðvikudag

mynd
NordicPhotos/GettyImages

Sir Alex Ferguson hefur látið í veðri vaka að varnarmaðurinn Rio Ferdinand muni koma aftur inn í lið hans í úrslitaleiknum í meistaradeildinni í vikunni.

Ferdinand hefur misst af fjórum síðustu leikjum United vegna meiðsla á kálfa sem hann hlaut í síðari leiknum gegn Arsenal í meistaradeildinni og hafði Ferguson gefið það út að Rio myndi ekki spila úrslitaleikinn ef hann næði sér ekki góðum fyrir leikinn gegn Hull um helgina.

"Rio er allur að koma til. Hann æfði á laugardaginn og aftur í dag og mér sýnist hann vera að koma til. Hann ætti að geta spilað á sunnudaginn," sagði Ferguson í gærkvöld.

Ég vona svo sannaralega að hann nái leiknum á sunnudaginn, allt tímabilið undir.....


visir.is.....

Atli Viðar Björnsson skoraði fyrsta mark FH í fyrri hálfleik og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson bætti við öðru snemma í síðari hálfleik. Tveimur mínútum síðar jafnaði Hafsteinn Rúnar Helgason metin með marki beint úr aukaspyrnu.

Var aukaspyrnan fyrir utan tveggjastiga línuna?


Er það???

Er einhver að fara að borga sig í höllina og sjá Yo! hanna?

Hún hefur sungið 1 lag sem þjóðin þekkir... er Maria Björk ekki að fara aðeins fram úr sér?

Þar fyrir utan eru allir komnir með upp í kok af þessu lagi...

Verst er að miðasalan hefst 25. jún en tónleikarnir verða 4 jún... getur ekki gengið upp


mbl.is Jóhanna Guðrún með tónleika í Laugardalshöllinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

flott hjá beniteþþþ

En hvaða afsökun ætlar hann að nota að sama tíma að ári....?
Þetta a´rið var það hvað Man U notaði mun meiri pening en Liverfools... ef hann ætar að setja met í peningum... og öll vitum við að hann mun ekki vinna neitt... hvaða afsökun mun hann nota?
Hann ætlar í Villa og Teves? og Tev heldur að hann fái að spila meiraen hjá Man U...... kjaftaæði plús að ann spilaði fótbolta með Man en þetta sem Liverdraslið er að gera........ ekki hugmynd...
mbl.is Benítez hyggst setja eyðslumet
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Woohoo!!!!!

Sturla Jónsson: „Ég er búinn að gefast upp“

mynd
Sturla Jónsson. Mynd/Frikki

Sturla Jónsson, vörubílstjóri og einn þekktasti mótmælandi síðustu missera á Íslandi hefur ákveðið að flýja land. Hann heldur til Noregs eftir helgi, kominn með nóg að eigin sögn og segir ekkert framundan á Íslandi.

„Ég fer eftir helgi, en fjölskyldan verður eftir hér heima á meðan ég safna í sjóð til þess aðkoma þeim út," segir Sturla sem ætlar að keyra flutningabíl í Noregi. Hann segir launin allt önnur og miklu betri í Noregi og segist fá um hálfa milljón króna fyrir fjörutíu tíma vinnuviku í laun. Hann segir að eiginkona sín sé einnig að reyna að fá atvinnuleyfi í Bandaríkjunum þannig að enn ´sé óljóst hvar fjölskyldan mun að lokum setjast að.

Sturla segist fullviss um að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi ekkert gott í hyggju hér á landi. Verið sé að arðræna landið og bendir hann á líkindin með ástandinu hér í dag og í Argentínu á sínum tíma, en eftir aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þar í landi fór landið að endingu á hausinn.

Hann hefur því fengið nóg. „Meðan fólkið stenudr ekki upp og mótmælir þessu er ekkert hægt að gera. Ég er búinn að standa í þessu síðan í mars á síðasta ári og það gerist ekkert af viti," segir Sturla og bætir við: „Ég er búinn að gefast upp."


Öskrandi sögu fölsun á visir.is, lögfræðingar í málinu!

Kajagoogoo í tónleikaferð

mynd
Limahl úr Kajagoogoo

Kajagoogoo ætlar í sína fyrstu tónleikaferð um Bretland með upprunalegum mannskap í rúm 25 ár.

Hljómsveitin gerði garðinn frægan á níunda áratugnum með lögum á borð við Too Shy, Ooh To Be Ah og Big Apple. Hún hætti nokkrum mánuðum eftir að Too Shy fór á toppinn í Bretlandi.

Söngvarinn Limahl, sem er orðinn fimmtugur, segir að það hafi tekið hljómsveitina 25 ár að vaxa úr grasi. Limahl, sem heitir réttu nafni Christopher Hamill, hætti í sveitinni árið 1983 og í stað hans tók bassaleikarinn Nick Beggs við hljóðnemanum.

Sem yfirlýstur Kajagoogoo aðdáandi þá finnst mér þetta hræðilegt að sjá!

Fyrir það fyrsta: til hvers er Nick Beggs að taka við hljóðnemanum ef hljómsveitin er hætt? í öðru lagi þá gáfu þeir út eðal skífu ári seinna Islands og man ég að ég fékk hana í afmælisgjöf og var hún spiluð í hengla, þar er einmitt að finna Big Apple plús annara eðal smella: Turn your back on me, Lions Mouth, Part og me is you..... ohhh good times.

Ég hef að vísu ekki hlustað á Islands í 20 ár en fannst hún tussu góð í þá gömlu góðu.

Síðasta plata sveitarinnar kom út ári seinna ef ég man rétt og þá voru þeir komnir í danspoppið og afskaplega ekkert gott og sveitin búin að taka Googooið úr nafninu og hét bara Kaja!

Nú er bara að stofna Feisbögg síðu og fá þá í Egilshöllina!... eða Amsterdam..

Er einhver á landinu sem viðurkennir að hafa verið fan back in the day annar en ég?

Ef hann er til þá var ég að sjá að það koma ný plata út í fyrra, Gone to the Moon ... djöfull ætla ég að fara að tékka á henni!

Varðlega

Ég hef ekki hitt hann/hana


Það er það klárt Litla hafmeyjan verður á Rás 2 í sumar!

Nú getur þjóðin rifjað upp gamalt bros því hin stórkostlegi útvarpsþáttur Litla Hafmeyjan verður flaggskip Rásar 2 í sumar... of mikið?

Þátturinn verður eins og í fyrra á föstudagskvöldum frá 19:30 til 22:00 í umsjá Dodda frá Reykjavík og Andra F. frá Köben nema að Búi Bendtsen skokkar í skarðið í júní þar sem Andri skellir sér á kvikmyndaskólabekk í Tékklandi.

Þátturinn verður væntanlega með svipuðu formati og í fyrra nema jafnvel betri... ef það er mögulega hægt... of mikið?

Fyrsti þáttur verður mánudaginn 1. júní (frábær dagur) sem er annar í hvítasunnu og er spurning um að vera pólitískur í upphafi og rífa kjaft! Guðlaugur Þór mun væntanlega verða fyrsti gestur og djöfull verður hann grillaður!!!

Hann líka kannski svarar þeirri spurningu: Eru allir stjórnmálamenn leiðinlegir? Dagur B gerði sitt besta til að svara þeirri spurningu játandi.

Litla Hafmeyjan góður félagi þeirra sem ætla að heimsækja landið okkar í sumar, fátt betra en að hanga í bústaðnum með öl og hlusta á Meyju sín...


Geymt en alls ekki gleymt! Specially for EMMCEEE


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband