Það verða cannónur sem mæta í hljóðver 1 á Rás 2 á föstudagskvöldið.
Hljómsveitabattlið heldur áfram og það engir aukvisar í þetta skiptið!
Unglingahljómsveitin Stuðmenn etja kappi við við sveit sem haldið hefur sig undir grænni torfu síðustu ár, Sóldögg.
Reglurnar í þetta skiptið eru
1 lag frá sjálfum sér
1 lag frá andstæðingi
og 1 lag þarf að vera rapplag og skoraði ég á Frímanninn til þess að rappa fyrir hönd Stuðdrengja, Beggi sér um rappið Daggar megin.
Gesturinn að þessu sinni er stórlax og hefur sopið fullt af ausum, Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra, sendiherra bara til að nefna eitthvað.
Áfram skorum við á þjóðina um að sýna hvað í henni býr og opinbera hæfileika sína í beinni útsendingu og jafnvel fá fyrir það verðlaun.
Reynt verður að ná sambandi við Andra Frey sem staddur er í Tékklandi, Check!
Síðast en ekki síst mun Elvis Aron Prezz taka lagið og keyra allt í rugl í lok þáttar.
Það væri rosaleg heimska að leggja(st) ekki við hlustir klukkan 19:30 á Rás 2 á föstudaginn.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.6.2009 | 20:26
Er þetta ekki að verða gott?
Svo er enn verið að tala um Ribery!!!
Á ekki að tékka á neinum varnar mönnum?
Það verður stuð að skoða Real á næsta ári allir leikir fara 10-10 Ronaldo verður með massa fína hárgreiðslu (Silver gelið) og allir að rífast vegna þeir fá ekki að spila jafn mikið og þeim var lofað.
Ég ætla að segja það núna: REAL VINNA EKKI NEINN TITIL Á NÆSTA ÁRI!!!!
Allt og margar stjörnur í einu liði (það eru að vísu allt of margar stjörnur í liðinu sem Ronaldo spilar með hann er jú bestur, næst bestur og þriðji bestur) og ef mórallinn var í lagi í vetur þá verður hann handónýtur næsta síson.
Ég gruna að Chel$ sigri meistaradeildina og er pínu hræddur um Liverpool vinni jafnvel deildina ... nei andskotin ekki á meðan ég lifi.
Zlatan á leið til Real Madrid | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2009 | 17:38
Litla Hafmeyjan á fös 19. júl kl. 19:30 á Rás 2
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.6.2009 | 11:04
Er hann með pung í þetta?
Hann hafði ekki punginn í að taka við KR segja heildsalasynirnir...
Til hamingju með þetta S. Ingimundar, þetta er mikil viðurkenning myndi ég segja.
Solna vill fá Sigurð sem þjálfara | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.6.2009 | 10:04
Kominn tími til...
Það eru mörg ár síðan þetta var sett upp síðast, algjör skandall.
Þetta er svo mikið listaverk og ætti að setja upp nýja uppfærslu á hverju ári!
Besta uppfærslan hingað til | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2009 | 14:57
Litla hafmeyjan á föstudaginn
Búi Bendts hoppar í skarð Andra þar sem hann þarf að skreppa til Tékklands.
Land og Synir etja kappi við Jan Mayen í hljómsveitabattlinu, reglurnar í þetta sinn eru: eitt eigið lag, eitt lag frá andstæðingi og eitt lag sem flestir hlustendur kannast við nema það lag þarf að setja í Þrjú á palli útsetningu, spennandi.
Egill Einarsson, Störe, kjeppinn, Gillznigger,Kjötmaðurinn eða hvað hann heitir þessa dagana verður gestur þáttarins og spilar hann fyrir okkur föstudagsfílings lagið og sakbitnu sæluna hans.
Ekki má gleyma nýjasta æðinu í Íslensku útvarpi: Ísland hefur talent eða Hæfileikalandið!
Þar gefst hlustendum tækifæri á að láta öll ljós sín skína í beinni útsendingu fyrir framan alþjóð.
Spariþáttur Íslensku þjóðarinnar á föstudaxxkvöldum frá 19:30-22:00
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2009 | 10:04
Kominn tími til!
Bítlalögin í léttri kammer-sveiflu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.6.2009 | 10:00
Fyrsta Íslenska platan sem heillar mig í laaaaangan tíma.
Þó svo að maður lumi á hinum plötunum þeirra upp í hillu þá verður gaman að heyra hvað þeir telja best off.
Svo náttúrulega þættirnir 2004, kæmi mér ekki á óvart ef vinur okkar frá Nígeríu sé í stóru hlutverki.
Þessi verður tilvalin í bílinn á ferðalögum um landið.
Til hamingju.
Tvíhöfði gubbar af gleði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2009 | 13:38
Litla Meyjan komin á beinu brautina...
Þá er Litla Hafmeyjan komin á sinn tíma, föstudagar 19:30 til 22:00.
Fyrstu hljómsveitaböttlin fóru fram síðast föstudagskvöld: Mammút vs. Á Móti Sól og Brain Police vs. Cliff Clavin.
Reglurnar þetta skiptið voru að böndin áttu að tala eigið lag, lag frá andstæðingi og nýtt frumsamið sumarlag og er óhætt að segja að allir hafi deliverað ofar væntingum.
Mammút mættu söngkonulaus en náðu samt að sigra Á.M.S. 5-4 (hlustendur völdu þann sem þeim þótti betri). Það var virkilega gaman að heyra samrunan eftir keppnina þar sem Magni söng með Mammút, Rauðalæk.
Seinni leikurinn var hressandi sömuleiðis en þar vann Cliff Clavin 5-1 stórsigur á Brain Police sem áttu samt besta sumarlagið.
Svo það er ungliða hreyfingin sem heldur áfram í 8 liða úrslitin og vonandi flagga mammútliðar söngkonu í það skiptið.
Einnig heyrðum við í Plútó sem átti að fara í tísku og hegðun en talaði aðallega um KB sem stjórnar einhverjum tískuþætti á Skjá einum.
Síðast en ekki síst var farið í Hæfileikalandið þar sem hlustendur fá tækifæri á að slá í gegn í beinni útsendingu.
Sigurvegari kvöldsins var Stefnir sem söng She´s gone með miklum glæsibrag.
Hlakka til að sjá hvað þjóðin ætlar að bjóða upp á í næstu viku.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2009 | 10:41
Hræðilegar fréttir!
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)