Færsluflokkur: Spaugilegt

Nýtt Ding í spilarann

Ég henti 2 nýjum Ding Dong bitum í spalarann, annað brotið er dæmi um þroskað skopskin  okkar (brandarahorn prump).

Hinn bitinn er stuttur dagskrá trailer sem segir hvað var í þættinum fyrr um morguninn, þar sem Pétur útskýrir hvernig hann talaði við hundinn sinn Bórís og ein skemmtilegasta hugmynd sem ég hef átt í útvarpi: Þar tókum við upp einræðu daginn áður, hringum svo í beinni útsendingu og viðmælandinn talaði við upptökuna frá deginum áður og var aðal kúnstin að reyna halda fólki á spjalli eins lengi og mögulegt var oft á tíðum mjög lengi, á meðan flissuðum við eins og hálfvitar í hljóðverinu.

Því miður þá bjargaðist ekkert af þessari snilld þegar geymslu tölvan dó nema þessi stutti bútur.

Það erum við komnir aðeins lengra með þetta og erum farnir að "pithca" niður röddina en samt var fólk að falla fyrir þessu.

Vel þess virði að tékka á þessu, því miður allt of stutt.

Búturinn heitir: Boris og strákurinn sem er ástfangin af þér


Bill O´Reilley í stuði og er tilbúinn að dansa með ykkur núna!

 

Þetta myndskeið er í boða Omma, stolið þaðan... 


Segið svo að Júróbandi sé ekki að sigra Evrópu!!!


Ég man ekki eftir Sigmundi Erni svona hressum


Þetta eru rokkstjörnur dagsins í dag!

Þetta er X-ið og Fm að blasta sem rokkstjörnur!

 

 

Við viljum ROKK STJÖRNUR!!! Ekki nikkelbakk.

 

 

Svo voru einhverjir að tala um að Robbir Will væri svo mikill töffari???

Hann er viðkvæm kona!


Jæja þá er það klárt!

Það er þá opinbert: Litla Hafmeyjan fer í loftið 6. júni búið að ganga frá öllu nema þá tæknilega hlutanum og ég efa að Rásin klári það ekki á núll einni.

Litla Hafmeyjan er eða verður (eins og fram kemur neðar á síðunni) útvarpsþáttur á Rás 2.

Hann verður á föstufagskvöldum og hefst klukkan 19:30 og stendur til 22:00

Það verða ég, Doddi, og Andri Freyr sem stjórna þættinum. Andri mun tala frá Kongens Köbenhavn.

Ég mun fara nánar í smá atriði og jafnvel lauma einhverjum treilerum á síðuna þegar nær dregur.

 


ÚÚÚÚÚFFFFF!!!! ég var orðinn ansi stressaður

Gott fólk, við erum seif!

Guðjón Bergmann er ekki, endurtek EKKI að flytja úr landi, ég er einmitt búinn að vera að pirrast yfir þessu síðustu mánuði.

Hvað hefði maður gert ef hann hefði tekið upp á því að flytja út??? vil ekki huxxa þá huxun til enda!

Eins og flest allir  vita þá átti hann eina mest seldu íslensku sjálfshjálpar bókina síðasta haust eins og fram kom í auglýsingum.

Það segir okkur ansi mikið um hversu frábær þessi maður er, eina mest seldu... íslensku... sjálfshjálpar ... í haust !!!!!

Hvað komu út margar íslenskar sjálfshjálpar bækur út þetta haust ?? 

Þessa auglýsingu sá maður milljón sinnum síðustu jól í sjónvarpinu....

Magnaður drengur!

Ég tók eitt sinn viðtal við hann í útvarpinu, hann var svo óstjórnlega leiðinlegur að ég sagði bara: Guðjón, ég nenni ekki að tala við þig vinur, u are the weakest link, goodbye! 


Er þetta kærasti þinn???'

Ég var búinn að ákveða að væla ekki meira yfir þessu magnaða trukka gengi enda skíta á bak sitt nánast á hverri sekúndu en er hægt að gefa þessum manni séns???

Hvurn andskotann eru blöðin að birta þetta rusl frá þessum manni???

Mín leið á erfiðum tímum hefur venjulega verið að hlægja að aðstæðum og það fór því svo að ég stillti mér upp fyrir blaðalljósmyndara á fimmtudeginum veifandi kylfu og grettur á svip, Þetta átti að vera nett ádeila á viðbrögð lögreglu deginum áður. Eftir myndatökuna mæti ég á Kirkjusand til að sýna félögum mínum stuðning.

Á Kirkjusandi var ég beðinn um leyfi fyrir líkamsleit sem ég sagði óþarfa og afhenti möglunarlaust kylfuna en tók það skýrt fram að ég vildi fá hana til baka þegar ég færi af svæðinu og var það samþykkt af lögregluþjóni. Eitthvað leist yfirvaldinu samt illa á „vopnaburðinn" og var ég beðinn um skilríki sem ég afhenti án teljandi muldurs.

Hegðun lögreglumanna á svæðinu fannst mér ögrandi og virðing í samskiptum engin, t.d. tók það mikið tuð að fá skilríkið til baka. Þegar skilríkjunum var loks skilað og ég hugðist hafa mig á brott af svæðinu og bið um kylfu mína til baka þá neitaði lögreglumaður því þrátt fyrir fyrr gefið loforð.

Ég segi, þeir eru farnir að sjá rautt þessir menn, gefum þeim þá rautt, hættið að tala um þessa trukka.

Þetta er samansafn af *************** og ég enga athygli skilda!

Þetta er löngu komið gott....

Að maðurinn skuli reyna að kenna löggunni um erfitt hugarástand sitt....

Ég nenni ekki að tjá mig meir, ég er svo hneykslaður að ég á erfitt um pikk...


mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottasta persóna sem fram hefur komið í Íslensku útvarpi.

Ég hef síðustu vikur verið að lauma einstaka Ding Dong skets á þessa blog síðu og er óhætt að segja að fólk hafi tekið því vel (enda útvarp frekar vonlaust í dag Sleeping)

Í etta sinn hendi ég inn spari efni, maður að nafni Tony sem við duttum niður á alveg óvart.

Við vorum með dagskrálið sem kallaðist utanlandskeppni sem gekk út á það að hringja í útlönd og reyna að halda fólki á snakki sem lengst á þerra tungumáli, það þarf kannski ekki að taka það fram aðvið vorum vart mellufærir í Íslensku hvað þá meira.

Eftir að hafa tekið rúntinn um Evrópu þá var planið að skoða Ameríku, hringt var í einhver númer sem áttu að vera í Brooklin New York og áttum við að tala blökkumálísku.

Ég verð svona heppinn að lenda á þessum eiganda pizzu staðarins Tony´s og ef fólk vill kunna hvernig á að höndla leiðinlega kúnna þá hlustar þá á spilarann hér til vinstri.

Þetta var að vísu í annað skiptið sem við herjuðum á hann, gerðum það ári áður og þá hét staðurinn Ray´s Best Pizza og vorum við nánast búnir að koma honum á hæli og hótaði hann að koma og drepa okkur stinga úr okkur augun og þess háttar, að endingu var hann hættur að svara eða bara skellti á þegar við hringdum svo við ættum ..... í það skiptið...Devil

Semsagt þessar upptökur hér til vinstri eru gerða ári eftir að við ráðumst á hann fyrst, hann búinn að breyta um nafn á staðnum en alveg jafn pirraður.

Eins og venjulega eru bestu bitarnir ekki lengur til en þetta bjargaðist úr tölvu hruninu ógurlega, takið eftir að hann telur okkur vera Indverja og hann sé búinn að tala við FBI og það sé "agent" að taka upp símtölin, ef ég man rétt þá reynir "Súbeer" Sigga Lund að ræða við hann líka.... gengur ekki sem skildi.

Góða skemmtun!

14603_1

ps. stuttu eftir þetta fór Pétur til New York en þorði ekki að heilsa upp á meistara Tony, dem, það er minn draumur!


Velkominn í bloggheima Doddi minn

Þar sem ég á enga svona blogg vini þá vil ég bara bjóða mig velkominn í mína fyrstu bloggfærslu, takk fyrir.

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband