Færsluflokkur: Dægurmál

Eins og fram hefur komið

 

Þá er Litla Hafmeyjan að lenda í kreppunni og syndir til botns 26. des.

Þátturinn á föstudaginn verður að mestu í höndum Andra en eftir því sem ég hef hlerað af honum þá verður þetta í boði:

Gestur þáttarins Steinn Ármann Magnússon leikari.

Ingi, var að gefa út plötu fyrir viku tekur lagið.

Tékkað verður á Bjössa Stóns (Mínus, Motion Boys) en nýja Rolling Stones cover bandið kemur fram í fyrsta sinn á Players á föstudagskvöldið.

Nýja plata Guns n Roses verður skoðuð... en ekki hvað, þátturinn hans Andra.

Hann ætlaði að hlaða í einhverja magnaða keppni milli okkar... hef ekki hugmynd um hvað það verður en alltaf gaman að keppa.

Ekkert ákveðið þema verður í gangi svo tónlistin kemur úr ýmsum áttum og náttúrulega Guns....

Hver að verða síðastur að koma sér í Meyju fíling!

Litla Hafmeyjan föstudaxxkvöld frá 19:30 til 22:00 á Rás 2


Ný lending í spilara

 airbornetoxicevent

The Airborne Toxic Event

Var að lauma nokkrum nýjum í spilarann hér til vinstri.

Mæli sérstaklega með The Airborne Toxic Event Ammrísk sveit sem ég veit ekkert um en hún er að detta í þessa nýju 80´s melody rokk bylgju með White Lies og fleirum góðum.

Burial er pungur sem ég veit jafnvel minna um nema að orginal lagið var ekkert að heilla mig en þetta mix fær hárin á bakinu til að rísa.

Dan Black er tilvonandi popp stjarna ársins 2009 segja mér fróðir menn í Bretlandi, fínt lag.

Svo er gamli meistarinn Q-tip mættur aftur og alveg jafn cool og smooth og venjulega, einn af fáum sem geta ekki misst svalann sinn.

Svo náttúrulega rokklag ársins 2008 að mínu mati, MC Rut og Busy Bein´Born, hlustið, njótið, lifið.

We can do it!

 0202_q_tip

Q-Tip

 


Fjórða árið í röð hjá okkur báðum, life is sweat!

Fær að fjúka fjórðu jólin í röð

 dsc08944
Þótt ótrúlegt megi heita eru þetta fjórðu jólin sem útvarpsþáttur Andra Freys er lagður niður. Fréttablaðið/Stefán

„Hó, hó, hó. Svo eru menn að segja Bó einhvern jólaboða. En þegar ég er rekinn - þá fara allir í einhvern voða jólafíling," segir Andri Freyr Viðarsson útvarpsmaður.

Þáttur Andra og Þórðar Helga Þórðarsonar, eða Dodda litla, Litla hafmeyjan, sem hefur verið á dagskrá Rásar 2 á föstudagskvöldum síðan í vor, hefur verið skorinn niður í aðgerðum sem nú standa fyrir dyrum hjá Ríkisútvarpinu. Að sögn Páls Magnússonar útvarpsstjóra mun endurskoðun á rekstraráætlun liggja fyrir í lok vikunnar. Þær munu miðast við verra rekstrarumhverfi en engar tölur eru komnar á hreint.

Þetta er síður en svo nýtt fyrir Andra að standa í þessum sporum í desembermánuði. Eru þetta fjórðu áramótin sem hann fær uppsagnarbréf í vasann. „Já, þetta er nefnilega árlegt. Alltaf þegar líður að jólum og áramótum er ég að missa vinnu. Nýtt ár ber alltaf eitthvað nýtt í skauti sér fyrir mig. Í orðsins fyllstu merkingu," segir Andri Freyr sem fyrir ári fékk að fjúka af útvarpsstöðinni Reykjavík FM. Þar áður fékk hann sömu jólagjöfina, þá á X-FM, og þar áður á X 97,7.

„Þetta er kannski ekki alveg búið. Fröken Sigrún [Stefánsdóttir, dagskrárstjóri Rásar 2] segir að með betri tíð verði kannski hringt í Meyjuna. Maður vonar bara að þessir andskotar þarna á þingi fari að redda málunum svo maður komist aftur í útvarpið. Hún sagði mér að þetta væri einn af sínum uppáhaldsþáttum. Og ég hef enn nóg að segja þjóðinni, svo fólk viti það."

Síðasti þáttur sem bókaður er verður annan í jólum og þeir félagar ætla að halda góðum dampi þar til. „Næsti gestur er sjálfur Steinn Ármann. Sá sem leikur íslensk illmenni og skíthæla betur en nokkur annar. Og Kela kött. Það er ekkert þar á milli. Kisinn Keli og svo illmenni."

Andri Freyr er búsettur úti í Danmörku og talar þaðan í radíóið. „Ég er að vinna hérna. Níu til fimm. Hjá fyrirtækinu Brother, brother and Son. Við erum að setja saman ljós fyrir leikhús, tónleika og svoleiðis vitleysu. Ég var hérna einn til að byrja með en nú eru þeir orðnir sjö Íslendingarnir hérna í kringum mig. Eins gott ég fái fálkaorðu fyrir að redda landanum vinnu og peningum í útlandinu. Verst að þetta eru svo miklir vesalingar … sko, maður hefur verið að tala svo fallega um íslenskt vinnuafl og svo mætir þetta bara þegar því sýnist í vinnu, sofandi yfir sig heilu vikurnar."


Einkennileg Meyja á fös...... en skemmtileg var hún

bilde?Site=XZ&Date=20070428&Category=LIFID03&ArtNo=104280077&Ref=V2&NoBorder 

Litla Hafmeyjan var á einkennilegu nótunum í gær: Gestur kvöldisns, Valgeir Guðjóns lét mig vita með klukkutíma fyrirvara að hann væri veikur og kæmist ekki úr húsi... gott og blessað gerist á bestu bæjum.

Ég hringdi þá í Loga Geirsson og hann var klár í að vera aðal viðmælandinn í beinni frá Þýskalandi... nei nei... hann ákvað að vera ekkert að svara í síman þegar að því kom.

Ingi sem var að gefa út plötu sama dag ætlaði að kíkja við og taka lag eða 2 í beinni var settur á næsta föstudag en það láðist að láta mig vita af því(ekki Inga að kenna, Andri vildi fá hann í næsta þátt)

Svo náttúrulega var engin Andri heldur fóstbróðir hans Helgi Seljan sem var mér til halds og trausts og stóð hann sig eins og hetja.

Gestur þáttarins var að endingu Þórhallur Gunnarsson dagskrástjóri, Helgi fann hann á göngunum.... ástar þakkir Þórhallur.

Hvað gera menn þegar öll plön fara í vask?.... ? .....?

Auðvitað fara menn bara í ruglið, öll forvinna þáttarins fór fyrir lítið fé eins og lenskan er þessa dagana hér á landi.

Símaöt og landið og miðin, það er ekki á hverjum degi sem menn fara í að gera símaöt í beinni útsendingu enda er það oftast dæmt til að klikka (ætti að þekkja það, gerði þau þónokkur í Ding Dong í gamla daga).

Það var hringt í : Audda Blö, Sverri Stormsker, Egil Helga, Pétur Jóhann, Mugison og fl. kannski ekki merkilegustu öt sögunar en að reyna að plata fræga einstaklinga í beinni er hægara sagt en gert og ættum við að fá verðlaun fyrir að reyna það!!!!

Stórskemmtilegt þema kvöldsins var endurvinnsla (cover), öll lögin sem spiluð voru í þættinum voru í tvíspilun: orginal og coverið.

Margt mjög áhugavert annað ekkert áhugavert kannski.

Hér getur þú hlustað á þáttinn og þú verður ekki svikin(n) ég lofa því enda eðal þáttur.

Það má geta þess að það fer hver að  vera síðastur að Meyja sig upp í kreppunni þar sem að hún hefur lent í niðurskurðarhnífnum og fær ekki að lifa nema út árið en whadda hell, þetta var gaman á meðan gekk.
Hér hefur þú spilunarlista þáttarins, magnaður.... :-)
Lifi Íslenskir skemmtiþættir, við þurfum á léttleika að halda í kreppunni!!!!
Babe I'm Gonna Leave You" (Robert Plant, Page, BredonLed Zepplin/Joan Baez5:35
Think/Slappaðu afAretha Franklin, Teddy WhiteAretha Franklin/Flowers2:30
ShoutRudolph Isley
Ronald Isley
O'Kelly Isley, Jr.
Isley Brothers/Lulu2:54
Twist and ShoutPhil Medley / Bert RussellIsley Brothers/Beatles2:54
Mama kinSteven TylerAerosmith./Guns n Roses4:28
In the Army NowRob Bolland
Ferdi Bolland
Status Quo/ Bolland4:15
Step offJohn KongosJohn Kongos/Happy Mondays5:03
Whole Lotta Love"John Bonham, Willie Dixon, John Paul Jones, Jimmy Page, Robert Plant)Led Zepplin/Ike og Tina Turnin3:50
California GirlsBrian Wilson/Mike LoveThe Beach Boys/David Lee Roth2:41
WarNorman Whitfield
Barrett Strong
Edwin Starr/Frankie Goes To Hollywood5:36
Kick out the JamsMC5MC5/Rage Against The Machine3:09
Tainted LoveEd CobbGloria Jones/Soft Shell2:34
Just Be Good To MeThe S.O.S. Band,The S.O.S. Band,/Beats International4:10
Born To Be WildMars BonfireSteppenwolf/Slayer3:20
Where the Streets Have No NameU2/BonoU2/Pet shopBoys 3:42
    
    
    
    

Sellout, Valgeir Guð, endurvinnsla....

page44_1

Andrei Fry tók sér orlof til að sjá Slayer í Köben svo hann er löglega afsakaður.

Í staðinn fæ ég engan annan en mótorkjaftinn Helga Seljan til að stíga í hringinn og mun hann væntanlega láta menn heyra það og ég að flissa á meðan.

Sérstakt endutvinnsluþema eða "cover"þema verður í boði: tvíbaka, ábreiða.....

Er einnig planið að keppa í endurvinnslu musik og eins og allir vita þá hefur Helgi ekkert vit á musik!

Shure winn 4 me.....

Gestur kvöldsins verður líka endurunnin enda nýkominn úr Góðu kvöldi Ragnhildar Steinunnar.

Upphaflega átti að endurvinna Hemma en hann vill koma í des.... good times ahead.

Að endingu má benda á að gamla góða síma atið verður rifjað upp, get ekki tjáð mig meira um það.

Glimrandi gleði á fös og ég bendi á, Valgeir mætir snemma! fyrir kl.20:00

Nú er loxx hægt að hlusta á rúntþáttinn síðan á síðasta fös, bilun í vefþjóni

 

bilde?Site=XZ&Date=20080127&Category=LIFID01&ArtNo=101270148&Ref=AR&NoBorder


Bíla þema og flottir viðmælendur í Meyjunni á fös

bill-gates-car

Það verður sérstakt bíla þema á föstudagskvöldið í Litlu Hafmeyjunni, Rás 2 kl 19:30.

Eingöngu leikin tónlist sem tengist bílum og rúntinum góða.

Bo Hall, Þorgeir Ástvalds, Ragnhildur Steinun, Logi Geirsson (Ferrari eigandi) og Bjössi í Mínus segja okkur frá fyrsta bílnum sínum ásamt öðru sem þau vilja ræða.

Doddi og Andri keppa í rúntmusik, 1 Íslenskt og 1 erlent.

Tilvalir er því að skella sér á rúntinn á föstudagskvöldið og hlusta á Litlu Hafmeyjuna frá kl 19:30, góða skemmtun.c_documents_and_settings_administrator_my_documents_mini-car-lamborghini


Jakob Frímann Magnússon verður gestur á fös, Rás 2 kl. 19 :30

MBL0121785 

Það verður saumað að meistara Jakob á föstudagskvöldið enda hefur maðurinn væntanlega frá mörgu að segja á löngum ferli.

Stuðmenn, Frummenn, Strax, Bone Sinfony, Jack Magnet, Ragga and the Jack Magic Orgestra bara til að nefna eitthvað svo er hann náttúrulega miðborgarstjóri eða hvað?

Jakob segir okkur hvaða lag kemur honum í fíling á föstudagskvöldi og hver hans Sakbitna sæla er.

Plúsinn í pylsuendanum gæti mögulega verið "Krúsin" með Soffiu sætu og er það dagskráliður sem engin getur látið framhjá sér fara!!!!

Sól í dag mín Röndótta mær.....


Það er af sem áður var

Það lýsir svolítið ástandinu hjá mínum mönnum, þeir ná ekki í b-lið.

Það var alltaf til 2-3 lið í gamla daga en í dag erum við með 3 menn og búið....


mbl.is Snæfell dróst gegn KR í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Öskrandi krippa í gangi!

Ég held að ég noti mínar fáu krónur í að fæða börnin mín....

Bo getur allavega boðið upp á grjónagraut um jólin, gott með hann


mbl.is Uppselt á Jólagestina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fordómar!

Það á bara að rifta öllu sem tengist Iceland, helvítis Bretinn!
mbl.is Andlit Iceland sagt glíma við Bakkus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband