27.3.2009 | 22:01
What a game góðir gestir.....
Ég var að fylgjast með stöðunni við og við framan af leik og sá að Kef voru í séns svo ég skipti yfir á KKI live games stattið og hef verið fastur þar síðasta klukkutímann... góðir gestir... WHAT A GAME!
Ég náttúrulega versla ekki við glæpamenn svo ég er ekki með Stöð 2 sport 2 extra4 eða hvað þetta heitir en þetta statt getur haldið manni´í gíslingu ef leikir eru spennandi.
Ég man ekki eftir að hafa hrósað Keflvíkingum á ævinni en ...WHAT A GAME!
Ég tek ofan fyrir þessum drengjum og þessi Rosa er ekkert grín.
Nú set ég allt mitt traust á Frikka Ragg og hans menn í Grindavík.... þessi KR björn er ekkert ósigrandi, Teitur sannaði og Frikki hefur líka prófað að vinna þá.
Fyrir þá sem tala um að Íslenskur körfubolti sé drasl... fekk off!
Frúin á heimilinu (sem by the way hefur aldrei farið á körfuboltaleik) var janfvel spenntari en ég að fylgjast með stattinu og var komin með það á sína tölvu.
What a game!
Áfram Njarðvík....
KR sigraði eftir fjórar framlengingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það var náttúrulega klassískt fyrir Stöð2 Sport að sýna ekki leikinn en Kr.is sýndi leikinn beint á netinu og þvílíkur leikur. Þessi fer klárlega í sögubækurnar!
dud (IP-tala skráð) 27.3.2009 kl. 22:14
Hræðilegt að lesa um að helv. leikurinn hafi síðan verið frítt á netinu...
Þórður Helgi Þórðarson, 27.3.2009 kl. 22:33
Stöð 2 ræður augljóslega ekki við meira en eina beina útsendingu í einu því Arnar Björns sagði um daginn kareokí keppnin Idol hafi orðið til þess að ekki var hægt að sýna frá þessum leik. Mjög gott hjá St.2. Einn besti körfuboltaleikur í sögu úrslitakeppninnar og þeir að sýna falska unglinga gaula á sviði í Smáralindinni. Fokkers!
Emmcee, 28.3.2009 kl. 09:02
En Bíddu vann ekki KR ?
Hvað er verið að hrósa KEf fyrir að tapa þriðja leiknum í röð
Loosers.
En ok fóru af sviðinu með stæl , samt loosers vinna ekki einu sinni einn leik.
Ómar Ingi, 28.3.2009 kl. 11:18
Þeir hljóta nú að hafa unnið sér eitthvað til afreka ef Doddi litli er að hrósa þeim. Word?!
Emmcee, 28.3.2009 kl. 11:28
Doddi er ljúfmenni hið mesta og aumingjagóður maður með enddeimum.
Ómar Ingi, 28.3.2009 kl. 14:17
Þetta mun aldrei gerast aftur!!!!
Ég held bara að ég hati KR meira en Kef.... munar samt ansi litlu
Þórður Helgi Þórðarson, 29.3.2009 kl. 00:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.